Internet Explorer Sex, sem búið hefur á alnetinu undanfarin 8 ár, lést snemma dags 1. mars 2010 í Mountain View, Californiu, orsök fráfallsins var slys á vinnustað í höfuðstöðvum Google. Internet Explorer Sex, eða "IE6" eins og vinir og vandamenn kölluðu hann skilur eftir sig soninn Internet Explorer Sjö og barnabarnið Internet Explorer Átta.

Minningarathöfn um Internet Explorer 6 verður haldin kl 20.00, fimmtudaginn 4. mars í Bertelstofu á Thorvaldsen. Blóm og kransar afþakkaðir, en bjór vel þeginn.

Fimmtudag, 4 Mars
Kl 20.00

Thorvaldsen

Mælst er til þess að mætt sé í viðeigandi jarðarfararfatnaði.

Mætum og heiðrum minningu vafrans sem gerði okkur lífið leitt. Drekkum bjór, gleðjumst og grátum krókódílatárum.

SVEF og ie6funeral.com